Aðalfundur Félags fyrirburaforeldra verður haldinn þriðjudaginn 28. nóvember 2023 kl. 20:00 í Samfélagshúsinu á Vitatorgi Lindargötu 59. Helstu umræðuefni fundar eru að setja nýja stjórn sem mun sjá um að endurvekja starf félagsins til að skipuleggja fræðslu, stuðning og annað starf í þágu foreldra fyrirbura á Íslandi. Hvetjum alla til að mæta og vonumst til að sjá sem flesta.
Stuðningshópur fyrirburaforeldra
Öflugur stuðningshópur fyrirburaforeldra er á facebook á slóðinni: https://www.facebook.com/groups/fyrirburaforeldrar. Við bjóðum alla fyrirburaforeldra velkomna í hópinn.
World Prematurity Day er 17. Nóvember
Alþjóðlegur dagur fyrirbura er 17. nóvember – Kíkið HÉR á Facebook síðu World Prematurity Day